567 4262 · 893 3236sagtaekni@sagtaekni.isOpið virka daga 8–17
Sagtækni ehf.
Veggsögun í steypu

Steinsögun, kjarnaborun og múrbrot síðan 1987

Reyndir fagmenn sem vinna verkin eins fljótt og örugglega og hægt er – með þrifalegri umgengni og góðum frágangi.

Senda verkbeiðni Þjónustan okkar
Fjölskyldufyrirtæki
Áratuga reynsla og traustur mannskapur
Föst verðtilboð
Við komum á staðinn og gefum fast verð
Frí ráðgjöf
Um stærri og smærri framkvæmdir

Þjónusta

Allt frá sögun til frágangs

Tækjabúnaður Sagtækni og þekking starfsmanna hentar í flest verkefni, sama hvort þau eru stór eða smá.

Öll þjónusta

Steypusögun og múrbrot

Í steypu, vikurveggi, malbik og klappir.

Kjarnaborun

Kjarnaborar frá 12 mm upp í 760 mm í þvermál.

Styrkingar á burðarvirki

Nýjar styrkingar þegar veggir eru fjarlægðir.

Vélslípun

Gólf, veggir og loft – nánast ryklaust.

Múrbrot og niðurrif

Innanhúss og utan, förgun líka í boði.

Gólfhitafræsing

Fræsun fyrir gólfhita og lagnir.

Fyrri verk

Verk sem tala sínu máli

Frá stálstyrkingum og gluggaopum til niðurrifs heilla viðbygginga.

Sjá öll verk
Stálstyrkingar
Smíði og uppsetning stálstyrkinga
Viðbygging fjarlægð
Viðbygging fjarlægð
Brokk vélmenni
Múrbrot með Brokk-vélmenni
Steypusögun
Steypusögun
Bílar Sagtækni

Um okkur

Fjölskyldufyrirtæki síðan 1987

Sagtækni var stofnað af Vilhelm Jónssyni. Árið 2007 tóku núverandi eigendur, Aðalsteinn Sigurhansson og Helga Elísabet Kristjánsdóttir, við rekstrinum og árið 2015 sameinaðist HIS steypusögun Sagtækni.

Við höfum alla tíð verið í góðu samstarfi við fasta viðskiptavini – einstaklinga, fasteignafélög, verktaka og húsfélög.

Meira um okkur

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hvað þarf að koma fram í verðfyrirspurn?
Sem mest um verkið: þykkt og efni veggjar eða gólfs, hvort hann er steyptur eða hlaðinn og staðsetning í húsi.
Kostar ráðgjöfin eitthvað?
Nei. Við veitum faglega ráðgjöf um áætlaðar framkvæmdir þér að kostnaðarlausu.
Verður mikið ryk og óhreinindi?
Við verjum verksvæðið með plasti þar sem þörf er á og vinnum með öflugum ryksugum.

Fáðu fast verðtilboð í verkið

Fylltu út verkbeiðni eða hringdu í 567 4262.

Senda verkbeiðni